Einn á einn
Einn leikmaður. Full athygli þjálfara. Unnið markvisst í þínum áherslum.

Persónuleg þjálfun. Skýr markmið. Meiri leikgleði.
Við hjálpum þér að taka næsta skref — á þínum forsendum.
Hver leikmaður er einstakur.
Þjálfunin á að vera það líka.
MEIRA EN ÆFING
Leiksýn hjálpar börnum og unglingum að verða betri knattspyrnumenn með markvissri, persónulegri og skemmtilegri þjálfun.
Óháð getustigi eða félagi fær hver leikmaður meiri athygli, einstaklingsbundna leiðsögn og tækifæri til að vinna í því sem hann vill bæta. Þjálfunin styður við hefðbundnar félagsæfingar.
ÞJÁLFUN SEM VEX MEÐ ÞÉR
Frá fyrstu snertingu til betri leikskilnings.
Veldu aldurshóp og skoðaðu áherslurnar.
LEIKGLEÐI & GRUNNFÆRNI
Grunnurinn að góðum knattspyrnumanni byrjar með gleðinni við að vera með boltann. Börnin læra í gegnum leiki, áskoranir og einfaldar tækniæfingar.
Æfingar sniðnar að aldri og þroska hvers barns, þannig að allir geti upplifað árangur og ánægju.
EINKATÍMAR Í KNATTSPYRNU
Á sparkvelli, gervigrasi eða innanhúss. Við finnum tíma í sameiningu.
Við finnum leið sem hentar þínum markmiðum.
Einn leikmaður. Full athygli þjálfara. Unnið markvisst í þínum áherslum.
Tveir leikmenn með sameiginleg markmið, sem læra og taka framförum saman.
4 × 50 mínútur, (t.d. fjórir mánudagar í mánuði)
Áður en æfingar hefjast ræðum við við leikmann og foreldra um reynslu, markmið og áherslur.
Sjá verðskrá →EINSTAKLINGSGREINING LEIKMANNA
Við mætum á leikinn þinn og tökum hann upp. Að leik loknum greinum við frammistöðu þína og hjálpum þér að þekkja styrkleikana þína og sjá næstu tækifæri til framfara.
Jákvæð og uppbyggileg greining — með framfarir leikmannsins í fyrirrúmi.
FRÆÐSLA & FYRIRLESTRAR
Góðar venjur styðja við framfarir. Fræðslan er aðlöguð aldri þátttakenda og getur farið fram í litlum hópum.
Hvernig tek ég á mistökum og held áfram að læra?
Hvernig æfi ég mig sjálfur og verð betri leikmaður?
Hvers vegna skiptir það sem gerist utan vallar máli?
Hvernig styð ég aðra og legg mitt af mörkum?
FRÁ FYRSTA SAMTALI TIL FRAMFARA
Við söfnum grunnupplýsingum um aldur, reynslu, æfingabakgrunn og markmið.
Farið er yfir styrkleika og umbótatækifæri í samtali, á æfingu eða með myndbandsupptöku.
Persónulegar æfingar miðast við aldur, getu og markmið. Gæði, endurtekningar og skilningur eru í fyrirrúmi.
Uppbyggileg endurgjöf sýnir hvað gekk vel og hvernig má æfa áfram heima eða hjá félaginu.
Stakar æfingar eða lengri þjálfunarpakkar gefa tækifæri til að fylgjast með framförum yfir tíma.
FRAMTÍÐARSÝN LEIKSÝNAR
Við viljum byggja upp öflugan knattspyrnuvettvang með einstaklingsþjálfun, leikgreiningu og fræðslu.